fimmtudagur, október 06, 2005

Klukk

Var klukkaður af Hallgrími fyrir nokkur vissi ekkert hvað það var þá en hef fattað það nú. hér kemur þetta.

1. Ég hef alltaf verið alveg ógeðslega tapsár, skammast mín fyrir mörg atvik sem hafa átt sér stað í hita leiks og get ég ýmindað mér að óft á tíðum sé erfitt að æfa með mér fótbolta eða jafnvel taka í lítið spil!


2. Ég er frekar einfaldur gaur með einfaldan húmor. Fíla myndir sem fáir fíla svo sem seed of chucky og malibus most wanted ekki einu sinni minnast á family guy þættina ´þá er ég ekki viðræðuhæfur næstu mínútur. P.S. fíla samt ógeðslega indí, artí og suburb myndir einsog andy warholes empire state og þannig, gosh ég er svo artí. Freaking idiots.

3. Þótt ég sé mikið fyri tónlist og er meira indí en Birgitta Haukdal, er ég ekki indí plebbi. Ég veit ekki hvaða ár mamma gítarleikarans í The futureheads missti meydóminn.
Það gerir heldur ekkert fyrir mig að fíla dót sem enginn annar þekkir, og það er langt því frá að ég fíli allt sem fær hátt á pitchfork.

4. Þegar ég verð stór ætla ég að verða geimfari, atvinnumaður í fótbolta eða rokkstjarna einsog Gunnar Ragnarsson í Jakobínurínu.

5. ÉG er aumingi. Ég drekk ekki, reyki ekki, dópa ekki og ofan á það þori ég varla að skrópa í tímum! Það er nákvæmlega ekkert svalt við mig. ÉG get alveg eins pakkað saman og farið til loserstown eða Nerdville og hanigð með Nappa dyme, Pedro og Marv.

Ætla að blogga betur seinna þegar ég er ekki t-i-r-e-d eða þ-r-e-y-t-t-u-r einsog maður segir á íslensku.
Leiter