fimmtudagur, október 19, 2006

Sólarglæta í mannlausu herbergi er einsog áhrifin sem þú hefur á hjarta mitt.

Ég get viðurkennt margt. Byrjum á því að ég var aldrei vinsælasti bloggarinn á veraldarvefnum. Enda er erfitt fyrir frekar aumingjalegan 16 ára dreng, með enga sérstaka hæfileika að keppa við 4-5 fatafár unglingsstelpur sem gera fátt annað en að pósta myndum af djamminu. Hver stenst breezer og brjóst? Gott dæmi góðvinkonur mínar í wonder-berries
Ég bloggaði rosalega sjaldan. Svo þessir fáu sem nenntu að lesa röflæið í mér til að byrja mér hættu því fljótlega því bloggið mitt er svipað og myndir eins og Donnie Darko, Exotica og allar hinar Atom Ego-men myndirnar, það getur enginn hugsað sér að sjá þessar myndir í annað skiptið (ef þið náðuð því ekki þá var líkingin að enginn nennir að lesa bloggið mitt tvisvar).

Þessir hlutir eru þó í fortíðinni. Ég kynni nýja og bjartar framtíð hér á þessari síðu. Djammmyndir*, fullt af breezer, mikið af listum þar sem ég svara spurningum um áhugamál og annað slíkt. Þetta verður sjúklega heitt.
Ég ætla að reyna að fá 2-3 frekar heita gæja í lið með mér og í sameiningu munum við umbylta bloggheimi´Íslendinga.
Ef einhverjir þarna úti vilja sækja um þá eru nokkur skilyrði: base-tan (helst áhugamenn um ljós), strípur og mega ekki eiga neitt notað.
Áhugamál: stelpur, föt, ljós, vinir, djamm og æskilegt er að vita sitthvað um hvernig skal uppfæra bíla (spoilerkit, kerti, gírkassi, bremsur) eru orð sem þið þurfið að kannast við.
Kveð að sinni en lofa betrum og bótum og mikið af fótum. (nýir meðlimir)
Og já uppástungur fyrir nafn á hópinn og slagorð vel þegin ég var að hugsa um ásarnir, nor-virgin-klíkan eða all-about-the-pussy.
Kveðja Halldór Arnars
* Ég í bíó, ég með vinum í bíó, ég með vinum að horfa á dvd,
ég einn heima að horfa á dvd þegar vinir fara í heit partý sem mér er ekki boðið í.